top of page

​Skilmálar

Skilmálar
Fengur.net

fengur@fengur.net

Garðabær 225, Ísland

Fengur.net áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Sendingakostnaður

Öll vörukaup eru send með Dropp og er einn valmöguleiki fyrir viðskiptavini: á valdan Dropp afhendingarstað. Innheimt er fyrir sendingarkostnað í samræmi við það sem valið var við staðfestingu á vörukaupum. Ef verslað er í netverslun fyrir 20.000.- kr. eða meira fellur sendingarkostnaður niður og gildir það einnig um allt land.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Komi hún fyrir kl 11 er hún afgreidd samdægurs. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og gefa upp um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar. Fengur.net ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í sendingarferli eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Fengur.net til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Greiðsluleiðir

Í vefverslun Fengur.net er hægt að greiða með kreditkortum frá VISA og MasterCard og debitkortum VISA Electron og Maestro með greiðslugátt hjá Rapyd.

Að skipta og skila vöru

Skiptiréttur er í gildi á vörum sem keyptar hafa verið í verslun Fengur.net, svo fremur sem varan og / eða umbúðir þeirra eru í upphaflegu ástandi og vörunni skilað innan 14 daga. Við vöruskil getur þú fengið inneignarnótu en einungis ef varan er í upprunalegum umbúðum, ónotuð og óskemmd. Skila má vörunum í vöruskil Dropp og greiðir viðskiptavinur sendingarkostnaðinn af skilunum. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á tilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað nema viðskiptavinur geti sýnt kvittun fyrir vörukaupum.

Gölluð vara

Sé vara gölluð áskilum við okkur þann rétt að kanna hvort hægt sé að bæta eða laga vöruna. Ef ekki er hægt að bæta eða laga umrædda vöru getur viðskiptavinur óskað eftir inneign eða endurgreiðslu. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Öryggisskilmálar

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 46/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefjast þegar móttaka vöru á sér stað.IP tala viðskiptavina er skráð við greiðslu vörupöntunar. Þær upplýsingar ásamt persónuupplýsingum og upplýsingum um vörukaup gætu verið notaðar í tengslum við lögreglurannsókn vakni grunur um sviksemi eða misnotkun greiðslukorta.

Fyrirvari

Allar upplýsingar á uppboðsvef fengur.net eru með fyrirvara og engin ábyrgð er tekin á mistökum sem kunna að verða vegna þess að þær reynast ekki réttar eða ef upp koma villur í tölvukerfinu. Fengur.net áskilur sér rétt til breytinga á skilmálum þessum.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

bottom of page